30.7.08

Já, síðustu dagar hér á klakanum hafa alls ekki verið kaldir. Ég hef verið léttklæddari heimavið heldur en gengur og gerist og maður bara getur ekki annað gert en notið þessarra sjaldgæfu stunda. Spáin fram á næstu daga er bara svipuð, eðal bongó blíða!

Ég fékk einkunnir fyrir enskuritgerðirnar mínar í gær. Fékk A fyrir báðar og Excellent work í comment frá kennaranum. Hann var sérstaklega hrifinn af sálfræðigreiningu minni á Holden Caulfield úr Cather in the rye (gaurinn er svo illa haldinn af ADHD að það er ekkert smá!) og sagði mig koma fram með áhugaverðar skoðanir og hugmyndir varðandi báðar bækurnar (s.s. Pride and Prejudice líka).

Best að drífa sig í launakeyrslu svo maður geti komið sér heim aftur í bongóið.

3 Comments:

At 02 ágúst, 2008 13:01 , Blogger Hlynur og Erna Sif said...

Bongó bongó bongó!

Velkomin í daglega lífið mitt!

Njótið vel!

 
At 05 ágúst, 2008 09:54 , OpenID nurfah said...

Til lukku með einkunnirnar og nýja píanóið. Já búið að vera ótrúlegt veður. Er að hugsa um að fara í stuttbuxur en ekki gallabuxur.

 
At 08 ágúst, 2008 13:45 , Blogger eva said...

Til lukku með frábæran árangur!
Alltaf gott að fá viðurkenningu fyrir vel unnið verk :o)

 

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim