25.11.08

Það er alveg með ólíkindum hvað ég er orðin góð í ritgerðarsmíðum. Hér í október sat ég yfir þjóðhagfræðiritgerð í 10 klukkustundir og leit varla upp. Mér var heitt í hamsi enda hafði hagkerfi Íslands mjög nýlega steypst um koll og allt í volli, bara! Og ritgerðarefnið var "Utanríkisviðskipti Íslendinga". Hahahaha... Þvílík og önnur eins ritgerð hefur sjaldan sést, enda bölsótast ég út í allt og alla og hljóma eflaust eins og pönkari (því þeir eru jú reiðir út í kerfið) á köflum.

Ég var loks að fá einkunnina mína í dag. Ég fékk 9.0 fyrir kvikindið ;-) Það borgar sig sem sagt stundum að skrifa af lífs og sálar kröftum frá hjartanu og láta bara allt flakka....

3 Comments:

At 25 nóvember, 2008 21:13 , Anonymous Nafnlaus said...

Vá, til hamingju með það :)

Kv,
Kristín

 
At 25 nóvember, 2008 21:34 , Blogger jeg said...

Til lukku með það skvísó.
kv. Jóna

 
At 28 nóvember, 2008 12:48 , Anonymous Nafnlaus said...

Frábært :) til hamingju! Átt svo innilega skilið allar þessar fínu einkunnir sem þú ert að fá, ertu svo dugleg.
Knúsí,
Björg

 

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim