16.12.08

Jæja, nú er ég 6 einingum nær stúdentsprófinu. Á eftir að fá einkunn úr eðlis- og efnafræði en er allavega búin að ná þýsku og þjóðhagfræði. Finnst það nokkuð merkilegt að ég skuli hafa fengið 7 á þjóðhagfræðiprófinu, þar sem ég var orðin nokkuð kreisí af því að lesa efnið af tölvuskjánum (keypti kaflana sem þurfti að lesa á netinu) og var svo hrikalega ofvirk þegar ég kom í prófið að ég bara skrifaði eins og ég ætti lífið að leysa í 45 mínútur og var þá búin með prófið. Eyddi svo korteri í að fara yfir en breytti afskaplega litlu.

Annars er maður bara að reyna að finna jólagírinn. Það gengur hálf erfiðlega. Alveg sama hversu margar piparkökur ég borða..!!

1 Comments:

At 16 desember, 2008 13:07 , Blogger jeg said...

Vonandi eru þær einkunnir þér í hag líka. Knús og klemm mín kæra og njóttu bara þessa að eiga ljúfa stund ....það eru jólin.
Kveðja úr Hrútósveitó.

 

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim