7.6.04

Buhu... ég þurfti að fara í pyntingar í morgun. Blóðprufa og sársauki.. ekki gaman. Ég hata nálar. Skil ekki hvernig fólk getur verið meinatæknar og pínt fólk svona (já, móðir mín er meinatæknir.. en vinnur reyndar ekki í pyntingum lengur). Það er erfitt að vera til í dag með risastórt gat á handleggnum. Ok ég ýki svolítið.. bara smá.. en mér finnst ömurlegt að þurfa að gera þetta. En fyrst ég ætla að komast að því hvort ég sé með gigt eða ekki þá er þetta víst nauðsynlegt :(

Ólöf Svala var að byrja á sumarnámskeiði í Tennis- og íþróttaskólanum í Sporthúsinu. Vonandi verður gaman hjá henni, hún þarf að vera þarna allan daginn í 3 vikur... svo eru skólaslit hjá henni á morgun.

Fór annars með dömurnar mínar út í Viðey í gær í 1 árs afmæli Ásthildar frænku, fyrstu prinsessu af Viðey. Veðrið var æðislegt, bátsferðirnar vöktu mikla lukku hjá dömunum og göngutúrinn út í haga til að sjá hestana, folöldin, kindurnar og lömbin var líka vel heppnaður. Kökurnar hennar Oddnýjar voru alveg verulega djúsí og allir skemmtu sér bara vel. Til hamingju aftur, litla frænka.

Ég er hins vegar þreytt í fótunum eftir allt þetta labb í leiðinlegum skóm.

Viva la Teva! Hefði átt að vera í þeim í gær!

2 Ummæli:

Þann 07 júní, 2004 11:13 , Blogger Lilja sagði...

Skræfa geturu verið :þ Híhí ;) En mér finnst sko rosa gaman að stinga fólk, reyndar finnst mér aðalchallengið að geta gert þetta vel svo það finni sem minnst fyrir og það er markmiðið hjá mér í þessum stungum. Auðvitað verða einhverjir að geta gert þetta. En hvaða einkenni hefuru sem benda til gigtar?

Já, eru bara að koma að skólalsitum hjá Ólöfu Svölu? Ég er nú ekki einu sinni búin að komast að því hvenær þau eru hér, líklega í kringum 20 júní.

 
Þann 07 júní, 2004 11:25 , Blogger Asdis sagði...

Þú pyntingakona þarna!!! :-Þ ull ;) Já auðvitað er fólk mis-fært í þessum nálastungum, en ég hef bara lent nokkrum sinnum í þeim sem eru slæmir í gegnum tíðina, og það hjálpar ekki til við að losa sig við þessa fóbíu sem ég hef. Það var tekið svo mikið blóð áðan fannst mér, svo bara var mig farið að svima hérna í vinnunni áðan en hljóp út í búð og keypti mér samloku, banana og appelsínusafa til að redda málunum.
Gigtareinkenni sem ég hef benda að vissu leyti til liðagigtar, ég er búin að vera ómöguleg í tveimur puttum núna í rúmar 2 vikur, rosalega aum og stíf í liðunum. En það eru hins vegar ekki miklar líkur á gigt þar sem ekkert er af slíku í fjölskyldunum mínum. Vonandi er þetta bara vinnuálag eða eitthvað sem ég jafna mig á eftir afslöppun í sumarfríinu.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim