Ég heyrði aðeins í lækninum mínum áðan. Hann á nú eftir að vita hvað kemur út úr gigtartestinu en það voru komin svör úr öllu hinu dótinu inn á borð til hans. Ég er sem sagt miðað við allt það dótarí, við hestaheilsu (hvernig sem hestum nú líður) og það á ekki neitt að vera að mér. Sökk var 14, telst vera eðlilegt upp í um 20, þannig að það eitt segir okkur að það séu mjög litlar líkur á því að ég sé með gigt (hvernig sem það nú virkar annars). Í fyrsta sinn á ævinni er ég með gott járnmagn í blóðinu, það borgar sig sem sagt að borða grænmeti stundum ;) Kólesterólið er svo flott að maður roðnar bara. Blóðmagnið í minna lagi en þannig er ég nú alltaf. Hvítu blóðkornin í góðu lagi, ekkert hækkuð. Svo sagði hann eitthvað meira líka sem var rosa flott og ég man ekkert hvað er ;)
Þannig að... ekki miklar líkur á gigt hérna en verður samt gaman að vita hvað kemur út úr testinu.
Mér er allavega ekkert að batna í puttunum...
Stjáni ætlar að rústa garðinum okkar með traktorsgröfu um helgina. Það verður gaman að sjá hvernig það gengur :)
2 Ummæli:
Gott að þú ert við hestaheilsu systir góð. Segist mér svo hugur að Stjáni eigi nóg fyrir stafni um helgina!!!
Go Stjáni gogogo
Tíhí... já, súkkulaði-levelið hjá mér var í fínu lagi. Mætti vera aðeins hærra, meira að segja ;)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim