Jæja þá er búið að semja. Ég get byrjað hjá SFR um leið og Lilja systir kemur aftur til vinnu, og eina leiðin til að fá hana til að flýta því frá 1. september er ef ég múta henni með milljón undir borðið. Kannski get ég eitthvað gert uppi og eitthvað hérna í ágúst.. reynt að skipta mér á milli staða, það verður bara að koma í ljós. Annars verður bara risastór bunki af bókhaldsgögnum sem bíða mín. Ég er allavega með örugga vinnu til áramóta og svo sjáum við bara til með framhaldið.
Ég verð að vinna með Sverri sæta parísarfara!!! :D Ekkert smá gaman sem það verður hjá okkur.
2 Ummæli:
Til hamingju með starfið:)
Gaman að heyra að garðurinn sé kominn í lag...
Komum bara í pottapartý um jólin þegar við komum heim:)
Bið að heilsa litlu fjölskyldunni þinni þó sérstaklega litlu frænkum...
Til hamingju með þetta sæta :D
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim