24.6.04

Jæja, kl. 13:00 í dag (24. júní 2004) fer ég á fund með framkvæmdastjóra SFR varðandi vinnuna sem mér býðst þar. Bið um rosalega góðar hugsanir á meðan og smá róandi hugsanir líka því ég er soldið tense.

Allt önnur mál: Garðurinn okkar er ein stór baðströnd mínus sjórinn í dag. Skeljasandur yfir allt og við fáum líklegast þökurnar bara í dag þannig að strandmenningin stendur stutt yfir!

Hin núna árlega sumarbústaðaferð mín með Björgu og Sólrún verður farin á morgun og áætluð heimkoma er á sunnudagseftirmiðdeginum eða jafnvel um kvöldið ef við erum mjög latar. Stefnt er á að skúbba þessum skýjum einhvert annað, hafa sól og blíðu alla helgina, fara oft í heita pottinn, borða mikið af góðum mat (kótelettum), hlusta á góða tónlist (Right Said Fred hahahaha), drekka góðar guðaveigar og spila Catan þangað til ég vinn... þannig að kannski reyndar verðum við þarna þangað til frýs í helvíti.. en sjáum til hvað gerist. Kannski verða stelpurnar góðar við mig og leyfa mér að vinna einu sinni ;)

Mér skilst að önnur litla systirin mín hafi verið að fá sér kettling. Jæks.. það verður erfitt fyrir mig að díla við Ólöfu Svölu eftir að hún fær að sjá krúsidúlluna. Hún er búin að vera að nauða í mér um gæludýr sl. nokkur ár en ég er bara ekki til í að eiga kött eða hund (á alltof falleg húsgögn til að tíma þeim í eitthvað nag og klór), mýs, hamstrar eða naggrísir koma ekki til greina því það er nóg af músum í görðunum í kringum okkur, fuglar.. tjah.. veit ekki... langar allavega ekki í páfagauk, fiskar eru eitthvað sem mér tækist pottþétt að drepa á 8 dögum eða svo.. þannig að ég held að gæludýraumræðan eigi ekki mikla möguleika á mínu heimili. Ólöf Svala er reyndar búin að ákveða að fá sér hvolp um leið og hún flytur að heiman... ætli það verði á sama tíma og hún fær sér fyrsta kærastann?? (hennar orð!!)

2 Ummæli:

Þann 26 júní, 2004 16:40 , Blogger Heiða María sagði...

Haha, hún Ólöf er snillingur. Til hamingju með starfið, líka! Hvenær hættirðu í síðasta starfi?

 
Þann 27 júní, 2004 20:56 , Blogger Asdis sagði...

Ætli ég verði ekki að vinna þar sem ég er til 1. september. Er búin að vera að leysa Lilju systur af á meðan hún er í fæðingarorlofi. Fer svo bara beint í það að hoppa tveimur hæðum ofar í húsinu og á aðra skrifstofu :)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim