6.6.04

Jæja, við hjónakornin fórum að sjá Harry Potter and the prisoner of Azkaban í gærkvöld. Skemmtum okkur hátíðlega og vorum yfirleitt mjög hrifin, held ég. Stjána finnst reyndar vera rangur maður í hlutverki Lupin en ég var þokkalega ánægð með hann. Og í hvert skipti sem Sirius Black birtist á skjánum þá spilaðist í höfðinu á mér sena úr Friends þar sem Gary Oldman leikur drykkfelldan leikara. "Is that my arse?" hahahahaha

Ólöf Svala sá myndina í gærdag með Kristínu frænku sinni og var geysispennt bæði fyrir og eftir :) Vildi ekki fara út úr salnum í lok myndar heldur hefði viljað sitja áfram og horfa á hana aftur. That's my girl ;)

Svo var vorhátíð í Kársnesskóla í hádeginu í gær. Við mæðgurnar fórum og svo kom mamma líka með Lóu Sjöfn og það var svaka stuð hjá frænkunum. Mikið hoppað í hoppukastala og á trampólíni, mikið rólað og borðaðar pylsur og svo hjóluðum við heim með Lóu Sjöfn með okkur, en mamma keyrði. Lóu Sjöfn fannst rosa gaman að komast í svona "langan" hjólatúr með okkur, upp brekku, framhjá kirkjunni, niður laaaaanga brekku, gegnum hóp af fólki.. þetta var allt mjög spennandi en hún þarf aðeins að æfa sig á bremsunni til að vera öruggari :)

Svona var gaman að róla: (öðru nafni, fólk er mis-æst)


4 Ummæli:

Þann 06 júní, 2004 17:06 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Frábærar myndir af stelpunum! Sá líka Harry Potter (að vísu í þynnkunni minni, sem skemmdi aðeins fyrir), og fannst hún bara nokkuð góð, þótt hún væri á köflum örlítið sundurleit.

 
Þann 06 júní, 2004 20:47 , Blogger Lilja sagði...

LOL, ekkert smá frábærar myndir og Ólöf Svala er nú alveg brill þarna :D

 
Þann 07 júní, 2004 13:23 , Blogger Kris sagði...

Þetta eru alveg frábærar myndir af stelpunum og ég og Ólöf Svala skemmtum okkur ekkert smá vel í bíó! Núna get ég varla beðið eftir fjórðu myndinni! tala nú ekki um næstu bók :)

 
Þann 09 júní, 2004 03:36 , Blogger Hlynur og Erna Sif sagði...

Get ekki beðið eftir Harry Potter, ég og Hlynur erum að fara á ástralíufrumsýningu á morgun. Mun seinni að koma hingað heldur en heim búhú...
Verður samt gaman, hlakka líka til að fá bíópopp!

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim