Við hjónin sáum nýja mynd í Smárabíói á fimmtudagskvöldið. Á Íslandi er hún kölluð Suddenly 30 en upprunalega heiti hennar er 13 going on 30, ég held að það hafi verið talið of gelgjulegt nafn á annars soldið gelgjulega mynd. Hún var 99,6% fyrirsjáanleg en mjög fyndin á köflum, sérstaklega ef þú varst gelgja á árinu 1987 eða svo. Ég orgaði af hlátri þegar þrítug daman dró liðið út á gólf með sér í Thriller dansinn.
Svo fór ég nú bara í hina árlegu stelpusumarbústaðaferð um helgina með þeim Björgu og Sólrúnu. Mikið fjör, mikið gaman. Mikið borðað, slatta drukkið. Mikið spilað og ég meira að segja vann Catan tvisvar þó svo að allavega annað skiptið hafi Sólrún svona hmmm haldið sig til baka aðeins ;) Potturinn.. já við fórum ansi oft í pottinn! Mikið rosalega er gott líka að grilla lambakjöt á kolagrilli.. maður var alveg búinn að gleyma hvað það væri gott. Svo komst á beint símasamband milli Vaðness og Parísar á aðfararnótt sunnudagsins, mikið fjör í París líka! Sverrir, þú áttir að setja fleiri bloggmyndir upp hjá þér frá París.. ;)
Vika í "sumarfrí". Það verður ágætt að fá smá frí frá vinnunni allavega :)
3 Ummæli:
Sko... ég er mjög forvitin... hvað er eiginlega Catan?
Catan er landnemaspil. Mjög leiðinlegt þegar manni gengur illa en mjög skemmtilegt þegar manni gengur vel :) kostar morð fjár í næstu Hagkaupsbúð.
Mig langar nú bara að sjá þessa mynd eftir eighties lýsingarnar þínar, híhíhí.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim