40 mínútur í sumarfrí og ég nenni voða lítið að gera neitt í viðbót hérna í vinnunni. Hvað getur maður gert sem tekur 40 mínútur eða minna, því ekki vill maður fara frá hálfkláruðu verki!
Garðurinn hjá okkur er orðinn rosalega fínn og vonandi tekst elsku manninum mínum að klára að tyrfa síðasta spölinn á eftir eða á morgun, því þá er hægt að fara að drífa sig í palla málin! Ég hlakka ekkert smá til að vonast nú til að geta aðstoðað eitthvað í sumarfríinu mínu :)
Heyrði frá Margaret vinkonu minni í morgun að Hlynur og Erna Sif væru komin til hennar, búin að þvo af sér þvott, borða vel, spjalla og hlægja heilmikið. Þau eiga stóran dag á morgun, ætla að fara í þjóðgarð og runnalabba (bushwalk) í regnskóginum eins og Margaret orðaði það. Hlýtur að vera geggjað gaman hjá þeim á þessu frábæra ferðalagi!
Svo ætla ég að fá sólskin og 18 stiga hita frá og með morgundeginum kl. 9 fyrir hádegi og alveg að 19. júlí kl. 9 fyrir hádegi, ok?? :)
2 Ummæli:
Vííí, ertu komin í sumarfrí? En æðislegt. Ég er sko farin að hlakka til að fara í mitt sumarfrí :D
Jamm mætt í sumarfrí og það er byrjað að rigna ;)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim