6.7.04

Jæja, þá hefur það verið staðfest að tónleikahaldarar á sunnudagskvöldið slökktu á loftræstikerfinu löngu áður en Metallica byrjaði að spila, þannig að þegar tæplega 18.000 manns voru orðin heit og sveitt og þreytt á að bíða eftir bandinu, þá var bara allt súrefni á staðnum notað upp. 4 manneskjur enduðu á spítala og þurfti að hlynna að 100 manns á staðnum. Þeim fannst nefnilega eitthvað svo kúl að setja reykmaskínuna í gang og láta reykinn líta út sem þoku þarna uppi í loftinu ;) Greit man!
Nú er blessuð (bölvuð reyndar) ríkisstjórnin ennþá að skíta í buxurnar. Þeir geta ekki hugsað sér að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla þannig að þeir reyna að redda sér í horn með því að draga fjölmiðlalögin úr gildi og semja bara ný... og breyttu heilum tveimur gildum í lögunum, tíma þangað til lögin taka gildi, og 5% urðu að 10%. Greit man!
Ég sá Steingrím J. Sigfússon níðast á Geiri H. Haarde í sjónvarpinu í gær. Geir sat þarna eins og aumingi og gat varla komið fyrir sig orði, á meðan Steingrímur ásakaði stjórnina um barbabrellur og kom með fullt af skemmtilegum orðum um vinnubrögðin sem höfð eru fram. Greit man!
Í gær voru steyptar undirstöður fyrir pallinn okkar hérna í garðinum. Og Stjáni og smiðurinn ætla að smíða grindina í dag og Stjáni spáir því að svo lengi sem það verður sól seinni partinn á fimmtudaginn þá geti ég lagst í sólbað á pallinn þá :) Það er sko greit man!!!!

2 Ummæli:

Þann 06 júlí, 2004 18:27 , Blogger Asdis sagði...

LOL já býð kannski í sólbað ef það verður sól :)

 
Þann 07 júlí, 2004 09:33 , Blogger Asdis sagði...

Ég vissi það :) Veit ekki um marga Halldóra annars sem lesa bloggið mitt ;)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim