Mæli með Paulo Coelho. Hef reyndar bara lesið "The Alchemist" og "11 mínútur" eftir hann, og er í miðri "The fifth mountain", en það er bara svo gott og róandi að lesa bækurnar hans. Frásagnir hans láta mér líða vel. Sögurnar hans eru fallegar og mjög vel sagðar. Ég þarf bara að finna mér fleiri bækur eftir hann :)
Mæli líka með kvikmyndinni "The Terminal" með Tom Hanks og Catherine Zeta-Jones. Mjög falleg mynd, vel gerð, vel leikin og já, allavega fannst mér hún vera góð :)
Get ekki annað en mælt líka með súkkulaði. Hvaða súkkulaði sem er. Bara súkkulaði og nóg af því! Það klikkar aldrei ;) Punktinn yfir i-ið setur svo smá mjólkursopi til að renna súkkulaðibitanum niður. Ég held ég verði að fá mér svoleiðis á eftir!
1 Ummæli:
Já, ég hef einmitt lesið Alkemistann (sem er frábær) og er byrjuð á 11 mínútum (sem lofar góðu). Coelho er mjög sérstakur höfundur.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim