8.4.05

Andsk.... maður búinn að bulla heilmikið og svo bara dettur það út. Ég er ekki ánægð með blogger akkúrat þessa stundina....

Ég ætla samt að reyna að bulla þetta upp á nýtt :) svona fyrst það er föstudagur :)

7 dagar í Hina Árlegu Sumarbústaðaferð BÁS (tm) eða HÁSBÁS. Haldið verður í Húsafell í þetta skiptið og verður eflaust mikið gert af því að nema land, kaupa stræti og hótel og reyna að muna asnalegar Friends-staðreyndir. Góður matur verður etinn og örlítið smakkað á vægum guðaveigum.

28 dagar í lokapróf í Félagsfræði 203. Ég held ég sé í þessu fagi for all the wrong reasons. Mér finnst voða merkilegt að lesa um allt þetta óréttlæti sem viðgengist hefur í heiminum hér og þar í hitt og þetta langan tíma, en hef lítinn áhuga á að skilgreina aðstæðurnar samkvæmt hinum og þessum kenningum félagsfræðinnar. Af hverju má maður bara ekki vinna þetta eftir sínum eigin skoðunum, ekki fyrirfram ákveðnum formúlum frá einhverjum köllum sem eru síðan löngu látnir??

84 dagar í flottustu tónleikana í Egilshöll. Hugmyndir fljóta í kollinum á mér, um myndefni á bol til að vera í á kvöldinu merkilega. Búin að prófa að setja nokkrar hugmyndir upp í Photoshop og er nú bara nokkuð stolt af sjálfri mér. Spurning hvort maður þurfi nokkuð að vera að angra einhverja grafíska hönnuði, heldur leyfa bara eigin ágæti og fikti njóta sín áður en haldið verður með afraksturinn til Dogma-Guðna sem ætlar að láta prenta á bolinn fyrir mig. Fyrir utan það já, ég þarf víst líka að ákveða hvernig bolurinn sjálfur á að vera á litinn og hvernig í laginu... Úff..

Góð lína frá Lennon eða McCartney eða bara báðum:

If I cannot sing my heart, I can only speak my mind!

Bull dagsins var í boði súkkulaðirúsína frá Góu.

Seacrest out! (eða eitthvað...)

3 Ummæli:

Þann 11 apríl, 2005 11:54 , Blogger Asdis sagði...

Já, það er gott að ég geti þakkað genunum eitthvað ;)

 
Þann 12 apríl, 2005 01:40 , Blogger Heiða María sagði...

Fær maður svo ekki að sjá afrakstur Photoshopvinnunnar?

 
Þann 12 apríl, 2005 08:02 , Blogger Asdis sagði...

Jú það hlýtur nú að vera hægt... um leið og ég kem tengingunni minni í lag heima! Eitthvað bölvað vesen með að skipta út ADSL símans yfir í Hraðbraut Hringiðunnar.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim