30.4.05

Ég ákvað að gera smá tilraun þessa helgina. Athuga hvort mér tækist að hjóla í vinnuna á innan við hálftíma. Og nú sit ég hér í vinnunni, nokkuð þreytt, og tókst að hjóla í vinnuna á 28 mínútum! Og geri aðrir betur sem ekki hafa hreyft legg né lið í marga mánuði Muahahahaha....

Þetta verður skárra á leiðinni til baka því þá fæ ég vindinn í bakið.

Og nú þarf ég bara að kaupa mér MP3 spilara svo ég deyji ekki úr leiðindum á þessum 56 mínútum sem ég ætla að eyða í þetta hvern virka dag næstu 2 vikurnar eða svo.

Nú er planið að:

1) Fara fyrr að sofa á kvöldin.
2) Vakna fyrr á morgnana.
3) Vera mætt á leikskólann með grislinginn minn á slaginu 7:30.
4) Drekka fullt af vatni.
5) Vinna Hjólað í vinnuna keppnina með glæsibrag!

Hver vill hefja veðmál um að mér takist þetta, tjah, eða takist þetta ekki, næstu 2 vikurnar?

2 Ummæli:

Þann 30 apríl, 2005 17:05 , Blogger Heiða María sagði...

Ég mæli með að hlusta á hljóðbækur. Gott fyrir fólk sem langar að lesa en hefur ekki tíma.

 
Þann 02 maí, 2005 14:46 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hmmm, ég sé nú ekki betur en að nýji bíllinn þinn sé hérna úti á bílastæði!!! :-)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim