Jaaaahúúúúúú.... góður föstudagur í dag. Mér sem leið eins og það væri föstudagur á miðvikudaginn... þannig að þetta er langþráður dagur. Annars verð ég vinnandi eitthvað frameftir í dag að telja atkvæði með/móti kjarasamningnum hérna í vinnunni, voða gaman. Svo förum við hjónakornin út að borða og að lokum í eitthvað brjálað partý hjá klikkuðu gengi í Hlíðunum ;-Þ
Vá... ég hef meðvitað verið að venja mig af Eagles/Don Henley undanfarið, s.s. hlustað á eitthvað annað í vinnunni. Svo skellti ég á random í morgun og kom þá ekki þetta ótrúlega flotta lag "Wasted time" og ég bara kolféll strax. Fyrir þá sem ekki þekkja þetta lag, þá mæli ég með því að fólk kynni sér það. Ótrúlega flott laglína, miklar tilfinningar, sársaukafullur texti, geðveikt flott rödd og frábærir hljóðfæraleikarar. Það gerist bara varla betra.
Annars er föstudagur í dag þannig að ég held að ég skelli bráðum Palla í græjuna hjá mér, "Stanslaust stuð" eða "Bundinn fastur við þig" eða eitthvað álíka *<8-D Vúhúúúú...
3 Ummæli:
Ég veit að það er sól og gott gluggaveður en er ekki óþarfi að segja að það sé 1. JÚLÍ (sem er reyndar líka föstudagur).
ROTFLOL hahahahahahaahah...
Ekki veit ég hvernig þetta gerðist.. en mér tókst allavega að laga :) Sorrý, ég skal aldrei aftur láta þér líða eins og þú hafir misst af þremur mánuðum!
HAhaha, brjálað partý hjá snarklikkuðu liði! Þið eigið eftir að skemmta ykkur ;) Það er líka svo æðislegt veður!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim