Ég held þetta sé eitthvað samsæri með veðrið hérna á höfuðborgarsvæðinu og tímasetningu á Hjólað í vinnuna. Ég neita bara að hjóla þegar hitinn nær ekki upp fyrir 6 gráðurnar og von á rigningu hvenær sem er. Hef svo sem komið því á framfæri núna við aðila (blikk blikk jú nó hú jú ar!!) sem getur komið þessari kvörtun til þeirra sem sjá um að skipuleggja Hjólað í vinnuna. Hér eftir vil ég að þessi keppni verði haldin allavega í lok maí, ef ekki byrjun júní! Á þeim tíma er hitastigið nú yfirleitt farið að skríða yfir 10 gráðurnar, nema kannski þegar skellur á snjóbylur, þannig að þá gæti ég hjólað oftar.
Get ég látið eitthvað snúast aðeins meira um *MIG* ?
;-)
Fór á indælt vinkonukvöld í gær. Það byrjaði nú á því að það sprakk á nýja bílnum hjá mér og hann var svo indæll að láta mig vita af því með gulum blikkandi viðvörunarljósum í mælaborðinu. Ég sneri aftur heim á leið og þá koma bara rautt í mælaborðið og þar stóð STOP! Eiginmaðurinn var snöggur að skella varadekkinu undir hjá mér og eftir það hélt bíllinn greinilega að aðeins 3 dekk væru undir bílnum og varaði mig vel og vandlega við því að vera að keyra eitthvað meira. Merkilegt fyrirbrigði tæknin er, eins og Yoda myndi orða það.
Allavega, við vinkonurnar fórum á Vegamót og borðuðum alltof góðan mat og mikið af honum! Ég fékk mér Tagliolina með humarhölum sem er bara syndsamlega góður réttur. Ég hefði alveg getað haldið áfram að borða það fram eftir nóttu held ég. Svo að sjálfsögðu fengum við okkur brownie með ís (og ég fékk rjóma líka!) í eftirmat. Alveg hryllilega gott og við rúlluðum út í bíl eftir að hafa gjörsamlega etið á okkur göt. Svo var haldið í smá skoðunarferð í vesturbæ Reykjavíkur og þaðan í bíó að sjá Maria Full of Grace. Áhugaverð mynd um hræðilegt efni og skemmtilega gerð í smá amatörastíl.
Ég ætla ekki að vigta mig alveg strax eftir þetta átveislukvöld.
3 Ummæli:
Ásdís! Þú átt að skipta sjálf um dekk þegar springur... tsk! tsk!
Ég hefði nú ábyggilega reddað þessu ef ég hefði ekki verið í tímaþröng á leiðinni á stefnumót við vinkonurnar :) en ég tjakkaði þó allavega bílinn upp!! Langt síðan ég hef "séð" tsktsk.. minnir mig á Ishtar.. :)
Hehe, you know you're a nerd when... ;)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim