19.5.05

Mikið er leiðinlegt að þurfa að hugga niðurbrotna dóttur mína þetta kvöldið. Það er eins og allar hennar vonir og þrár séu horfnar fyrst að Selma komst ekki áfram í Eurovision keppninni. Maður getur svo sem búist við því hér með að þetta verði "Balkan-vision" í forkeppninni héðan í frá ;) Ósanngjarnt að hafa svona mörg lönd á svo litlum bletti sem öll styðja hvert annað en við erum hérna ein úti ballarhafi og vitum ekki einu sinni hvort skandinövum leist á lagið eða ekki.

"Það gengur bara betur nææææææææææææst" eins og sagði í svo góðu lagi hér um árið :)

1 Ummæli:

Þann 20 maí, 2005 09:10 , Blogger Heiða María sagði...

Já, ææ, aumingja Ólöf :( Get samt ekki sagt að þetta komi mér á óvart, mér fannst við ekki standa okkur neitt sérlega vel á sviðinu.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim