31.8.05

*geisp* svona er maður svakalega hress þessa dagana. Erfitt að fara framúr á morgnana og erfitt að fara að sofa á kvöldin því þá loksins er maður vaknaður almennilega.

Ég fór í saumaklúbb í síðustu viku, þar sem hittust þó nokkrar konur á öllum aldri og saumuðu út. Það var alveg frábært að komast í svona félagsskap, þar sem allir hafa sama áhugamál og talað um fátt annað en bestu búðirnar fyrir útsaumsdót, hvað maður fái á Ebay og hvaða mynd hin og þessi sé að gera og hvað maður hafi saumað hingað til. Mjög skemmtilegt :) Þessi saumaklúbbur heldur að mestu leyti til á póstlista á netinu, en reynt er að skipuleggja "hitting" reglulega.

Skólinn byrjar í næstu viku hjá mér. Ég ætla aldeilis að vera dugleg, taka jarðfræði, landafræði, lífsleikni og líkamsrækt. Mér finnst hugtakið líkamsrækt í fjarnámi mjög fyndið. Kúrsinn ÍÞR111 gengur út á það að þú lætur stimpla þig inn á líkamsræktarstöð 24 sinnum á önninni. Svo er líka hægt að taka kúrsinn ÍÞR121 þar sem þú lætur stimpla þig inn í sundlaug 24 sinnum á önninni. Ætli maður skelli sér þá ekki bara í heita pottinn 24 sinnum á vorönn ;-)

Ég væri alveg til í að sjá Joe Cocker annað kvöld í höllinni en tími varla að eyða 5.500 kr. í það. Nískupúkinn sem ég er.

Svo erum við hjónin líka að fara að skella okkur til London kringum afmælið mitt þannig að maður þarf að eiga smá pening fyrir það :) Hvað á maður að gera í London sem maður hefur ekki gert áður? Tillögur óskast...

2 Ummæli:

Þann 31 ágúst, 2005 20:57 , Blogger Heiða María sagði...

Þetta er eini saumaklúbburinn sem ég veit um sem snýst virkilega um að sauma.

 
Þann 31 ágúst, 2005 22:05 , Blogger Asdis sagði...

Hahaha já, einn af *mjög* fáum sem eru actually SAUMAklúbbar! Enda frábært, eins og ég segi, að komast í aðeins "öðruvísi" félagsskap en venjulega.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim