18.8.05

Gætu þetta verið ódýrustu 3 einingar til stúdentsprófs?

LKN 103 Lífsleikni

Nemandi:

skoði tilgang náms síns í skólanum og að hverju er stefnt. Geri sér námsáætlun í samræmi við markmið sín.

tileinki sér góð vinnubrögð í fjarnámi og þekki leiðir til þess.

kynnist listum og menningu í umhverfi sínu.

skoði dægurmál og geti rætt þau með gagnrýnni hugsun.

greini neyslu sína og kynnist neytendamálum.

læri að taka ábyrgð á eigin lífi þ.á.m. ábyrga afstöðu til fíkniefna og lyfja.

öðlist þekkingu á eigin samfélagi og lýðræðislegum aðferðum.

þroski með sér skilning á mikilvægi vistfræðilegs jafnvægis.

Námsmat:

Við námsmat verður haft í huga að nemandi sýni frumkvæði, leggi eigin mat á viðfangsefnin, lesi námsefnið og afli sér upplýsinga á sjálfstæðan hátt.

Þátttaka í umræðum 30%

Skilaverkefni 30%

Lokaverkefni 40%

Ekki verður lokapróf.


Ekki var þetta til þegar ég var í skóla í denn. Nei, þá var maður ekki neyddur til að tala við einn né neinn ;-)

Stefnan er tekin á 7 einingar á haustönn. Lífsleikni 103, Náttúrufræði 113 (jarðfræði) og Líkamsrækt 111, sem felst í því að stimpla mig inn á líkamsræktarstöð 24 sinnum á önninni. Mér finnst þetta svolítið merkilegt....

1 Ummæli:

Þann 18 ágúst, 2005 12:53 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hmmm, mér sýnist nú af þessu að dæma að þú ættir að fara létt með einn kúrs til viðbótar!!! ;-)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim