13.8.05

Nú kom ég sjálfri mér aldeilis á óvart. Fannst mér ganga þokkalega vel í prófinu í gær en var samt ekki alveg 100% viss á nokkrum svörum...

.. Ég fékk 9 í prófinu :-)

Líffræði er s.s. bara piece of cake eftir allt, þ.e.a.s. ef maður nennir að lesa námsefnið 45 sinnum ;-)

Þá er ég að spá í að taka NÁT113 (jarðfræði) og FJÖ103 (fjölmiðlafræði) í haust. Ætla að vera rosalega dugleg og lesa námsefnið 45 sinnum ;-)

Ég á 55 einingar eftir... 50 af þeim í "kjarna", s.s. grunnfögum. Fékk svo mikið af allskonar úr Versló metið í Val og Kjörsvið. Ef ég er rosalega dugleg get ég stefnt á stúdentsprófið 2008-2009 :-)

Og hvað á ég svo að verða þegar ég verð stór????

2 Ummæli:

Þann 14 ágúst, 2005 16:48 , Blogger Heiða María sagði...

Ótrúlega flott hjá þér :) En af hverju í ósköpunum ertu annars að taka próf á þessum árstíma? Eru sumarpróf?

 
Þann 14 ágúst, 2005 20:33 , Blogger Asdis sagði...

Ég er í fjarnámi hjá FÁ þar sem eru jú 3 annir í skólaárinu, haust-, vor- og sumarönn.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim