20.9.05

Það er fátt sem fer meira í taugarnar á mér heldur en auglýsingar sem gerðar eru af fólki sem kann engar málfarsreglur.

"Bestu verðin í bænum" (ég hélt að verð væri bara eintöluorð... besta verðið í bænum!)

".. með grilluðum bönunum" (Hvar finnur maður bönana?? Ég skil ekki á hvaða sýru fólkið er sem gerði þessa auglýsingu fyrir Hagkaup.)

Annars er ég bara orðin spennt fyrir Londonferðinni með eiginmanninum. Það verður gaman að prófa að gista á flughótelinu í Keflavík og ennþá meiri snilld að geyma bílinn þar fyrir ekki neitt og fá hann hreinan að innan og utan, fyrir vægt gjald, þegar ég kem heim aftur. Ég hlakka líka ótrúlega mikið til að fara að skoða Stonehenge, þessi magnaði staður hefur átt sterkan þátt í heillun minni af Englandi frá því ég var krakki. Og alltaf líður mér eins og ég sé komin heim þegar ég er í Hyde Park. Mér líður ofsalega vel þar :) :) :)

Ég fór í fyrsta "tímann" í líkamsrækt í fjarnámi í gær. Body Balance í Baðhúsinu er frábær hreyfing!

1 Ummæli:

Þann 23 september, 2005 04:01 , Blogger Unknown sagði...

Það eru vandræði að hlusta á útvarp í dag, ef þú ætlar að heyra íslensku talaða án þess að það séu notaðir frasar, "slang" og beygingar séu réttar. Og sjónvarpi líka ef hlustað er á Skjá einn. Ég hélt það hefði verið stefna hjá miðlunum að ráða fólk með góða íslensku-kunnáttu.
En annars, góða skemmtun í Englandi.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim