10.9.05

Mikið var svekkjandi kl. 20:05 í gær þar sem við vinkonurnar sátum spenntar í sætum okkar á 6. bekk fyrir miðju í Óperunni, þegar sýningarstjóri Kabaretts kom út á sviðið og aflýsti sýningu kvöldsins vegna þess að Felix Bergsson, einn af aðalleikurum sýningarinnar, hafði lent í slysi örstuttu áður. Ég vona það bara að Felix sé ekki mikið slasaður og getið haldið áfram sínu starfi sem fyrst. Við ætlum að reyna að komast á sýninguna 1. október en það er spurning hvort við fáum jafn góð sæti þá...

Við töltum okkur bara á Ólíver í staðinn, ég smakkaði Cosmopolitan í fyrsta sinn, og svo skelltum við okkur í bíó að sjá Charlie and the Chocolate Factory. Ég segi það aftur og enn... Johnny Depp og súkkulaði í sömu myndinni = það ætti hreinlega að banna slíka samsetningu!!! Yummi Yummi Yummi Yummi

3 Ummæli:

Þann 10 september, 2005 12:25 , Blogger eva sagði...

Nammmm... Cosmopolitan! :)

 
Þann 10 september, 2005 12:30 , Blogger Asdis sagði...

Hehehe já hann er sko algjört namm!!

 
Þann 16 september, 2005 22:04 , Blogger Litla Skvís sagði...

Og Johnny Depp og súkkulaði er ekki að gerast í fyrsta skipti! Chocolate og svo núna Charlie And The Chocolate Factory! Hugsaðu þér að horfa á báðar sama kvöldið.. held að maður þyrfti vökva í æð eftir slíkt! Hahahaha!

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim