Snillingar eru þetta hjá amazon í Bretlandi. Þegar ég opnaði Picnic at hanging rock þá var diskurinn laus í hulstrinu og nokkuð rispaður út af því. Ég ákvað að athuga með að fá að senda hann til baka og fá nýjan í staðinn, þar sem þeir eru með eitthvað return policy. Og viti menn, tveimur klukkustundum síðar fæ ég póst frá þjónustuteyminu (svo ég noti nú svakalegt tískuorð) um að ég fái sendan nýjan disk í staðinn en megi bara halda hinum, gefa einhverjum hann eða eitthvað, þar sem það svarar ekki kostnaði fyrir mig að vera að senda hann til baka. En indælt :) Þannig að nú á ég auka DVD disk með Picnic at hanging rock og ég held svei mér þá bara að stóra systir mín fái að eiga hann ef hún vill :)
Formúlan fór ekki alveg eins og ég vildi í dag. En það þýðir ekki að gráta það. Ég bið bara og vona að mínum manni takist að vinna þær 3 keppnir sem eftir eru og að Alonso takist ekki að komast í stigasæti... je ræt... en ég má víst alveg láta mig dreyma, er það ekki?
Best að fara að undirbúa sig andlega, er á leiðinni í 9 ára afmæli hjá skvísu með skvísurnar mínar. Vúppdídú! Það besta við þetta er að húsmóðirin á því heimilinu er alltaf með rosalegar kræsingar í afmælum :)
Ég upplifði þvílíka Deja-vu tilfinningu í partýi í gærkvöld. Var nú ekki búin með nema eitt og hálft glas af rósavíni, þannig að ég held nú að það hafi ekki verið málið ;-) En allavega, ég hafði aldrei komið heim til húsráðenda áður, en hafði svo innilega upplifað eitt atriði þarna áður, húsbóndinn sat við hliðina á mér í öðrum enda stofunnar og við vorum eitthvað að spjalla saman, húsmóðirin var í hinum enda stofunnar að gramsa í geisladiskum, og svo fóru þau hjónin að tala saman um Michael Bolton tónleikana. Ég bara fraus í smá stund, mér brá svo við að fá þessa tilfinningu. Hef ekki fundið svona sterkt Deja-vu síðan ég var krakki eða unglingur!
3 Ummæli:
Líst mjög vel á boðið um diskinn.... :-) UB
Hvað kostar að kaupa svona frá Amazon?
Ég versla alltaf á amazon.co.uk og yfirleitt bara á útsölum. Maður getur fengið DVD og bækur þarna á fáránlegu verði en það er best að kaupa bækur sér því þær eru með lægri VSK heldur en allt annað þarna. Allir þessir diskar sem ég keypti s.s. um daginn kostuðu mig í heildina 6000 kr með flutningskostnaði og vaski. Diskurinn með Eagles kostar 4600 á íslandi þannig að þetta var ágætis díll.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim