Þvílík snilld er Body Balance í Baðhúsinu. Þó maður kunni lítið í fyrsta (eða öðrum) tíma þá tekur þetta á, á góðan hátt, og maður er öllu liðugri í lokin heldur en fyrir tímann.
Þvílík snilld er helluborðið mitt í nýja eldhúsinu. Hver hella er með stillingum frá 1 og upp í 9 og svo Auto. Auto virkar þannig að þegar ég t.d. set á Auto og 2 og skelli síðan hrísgrjónapottinum á helluna þá kemur upp suða á hrísgrjónunum og þegar hún er komin upp þá fer hellan sjálf niður á 2, þannig að það sýður ekki upp úr og maður þarf ekki að standa yfir pottinum endalaust. Ég held bara svei mér þá að sniðugri fítus sé ekki hægt að hafa á helluborði!
Ég hlakka til að setjast niður í kvöld með útsauminn í fanginu og horfa/hlusta á nýja Eagles DVD diskinn minn. Það er fátt sem jafnast á við svoleiðis kvöld, þegar maður er sucker fyrir röddinni hans Don Henley.... Svo þarf ég líka að fara að horfa á hina nýju DVD diskana mína, keypta á útsölu hjá amazon: Picnic at Hanging Rock (sá þessa mynd einhvern tíman þegar ég var krakki og *varð* bara að kaupa hana þegar ég sá hana auglýsta á 4 pund), The Jerk (Steve Martin klikkar ekki) og All of me (Steve Martin klikkar *alls* ekki).
Ásdís out!
1 Ummæli:
OMG! Má ég fá Picnic at hanging rock lánaða þegar þú er búin með hana? Meira hvað svona myndir geta setið í manni.... Og vertu viðbúin - ég sá hana í bíó fyrir svona 10 árum og var þá alltaf að bíða eftir alls konar atriðum sem aldrei komu - þau höfðu sem sagt bara orðið til í höfðinu á mér :-) UB
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim