14.10.05

Heilög kú, þetta var fljótt!

Fór í atvinnuviðtal kl. 9:00 í morgun.
Mætt aftur í vinnuna um kl. 9:30.
Fékk símtal kl. 10:35, var boðin vinnan með því kaupi sem ég fór fram á og ósk um að byrja "sem fyrst".

Ég held ég hafi aldrei gengið frá málum svona fljótt áður á ævinni. Var þvílíkt búin að undirbúa mig fyrir það að fara í 14 viðtöl í viðbót ;-)

Mont mont mont mont mont mont mont!!!!

5 Ummæli:

Þann 14 október, 2005 17:38 , Blogger Heiða María sagði...

Nú, og hvað ertu þá að fara að vinna við?

 
Þann 14 október, 2005 18:01 , Blogger eva sagði...

Til hamingju!! Hvar ertu svo að fara að vinna? Ég byrja einmitt í nýju vinnunni minni á mánudaginn :)

 
Þann 17 október, 2005 08:32 , Blogger Asdis sagði...

Ég er að fara að vinna hjá HB Harðarson, sem er verktakafyrirtæki, staðsett með skrifstofu og smíðaverkstæði í Skógarhlíð 10. Bókhald - það er víst það eina sem ég kann og get unnið við ;-)

 
Þann 17 október, 2005 18:25 , Blogger Heiða María sagði...

Hey, það er ekkert það eina sem þú kannt, hehe, ertu ekki einmitt að mennta þig kona?

 
Þann 17 október, 2005 18:30 , Blogger Asdis sagði...

Hehehe jú en það er það eina sem ég kann *núna* Tjah.. ef ég gæti unnið við krosssaum fyrir 300þúsund á mánuði þá væri ég mjög ánægð kona, en þetta fleytir mér áfram í millitíðinni. Ég stefni á stúdentsprófið vorið 2009, held ég! Og þarf ég þá að fara að ákveða hvað ég vil verða þegar ég verð stór???

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim