7.10.05

Júhú... alltaf gaman að fá gott feedback frá kennaranum. Ég er búin að skila þremur verkefnum í NÁT113 (jarðfræði) og fæ A fyrir þau öll!!! Ekkert smá ánægð með sjálfa mig, gömlu konuna!

Ég þarf hins vegar að fara að taka mig á í ÍÞR111 og fara oftar í Baðhúsið. Nennir ekki einhver að sparka í rassinn á mér á hverjum degi með þetta? Mér finnst erfitt að hunskast af stað.

Annars er fátt að frétta svo sem. Sé fram á torfærugengisdjamm núna á morgun, svo verður óvissuferð í vinnunni föstudaginn 14. okt. Ég er enn svekkt yfir því að hafa misst af Singstar keppni Grettisgötu 89 en var svo sem á næst-uppáhaldsstaðnum mínum í heiminum í staðinn þannig að það var engan veginn slæmt.

Ég prjóna og prjóna á kvöldin, er að reyna að klára buxur á litla snúðinn, hann systurson minn. Ég er búin með peysuna og nú er bara fram og til baka, fram og til baka í skálmunum, svaka fjör :) (og ég skil ekki, núna þegar ég les þetta yfir, af hverju ég prjónaði ekki skálmarnar strax í hring!!!) Ég vona að hann verði ekki vaxinn upp úr þessu þegar ég loks klára! Lítið hefur farið fyrir saumaskap hjá mér undanfarið vegna þessa, en ég ætla að demba mér í það þegar buxurnar eru búnar. Þarf reyndar líka að klára lopasokka á eldri dömuna mína, ég er búin með einn og hálfan ;) Ætti svo sem að geta klárað það á einni kvöldstund.

Það er föstudagur og ég er engan veginn í vinnustuði! Hlakka ótrúlega mikið til að geta kúrt til ca. 8 í fyrramálið ;)

3 Ummæli:

Þann 07 október, 2005 15:23 , Blogger Litla Skvís sagði...

*sparkírass* vertu dugleg!
Ég er einmitt að fara að fara í ræktina, svona þegar Karítas verður aðeins eldri. Bý svo vel að eiga systur sem að er einkaþjálfari og hún gaf mér í afmælisgjöf 1 tíma í nudd, 5 tíma í ljós og mánuð í þjálfun ;)

 
Þann 10 október, 2005 18:13 , Blogger Heiða María sagði...

*Spark spark* Ásdís, drullastu í leikfimina, það er bara gaman þegar maður loksins drífur sig :)

Af hverju prófarðu ekki Body Jam, og Afró á laugardögum?

 
Þann 10 október, 2005 18:53 , Blogger Asdis sagði...

Ég hef ekki kraftinn í Body Jam og Afró.. fyrir utan það að geta ekki munað nein dansspor þó að lífið lægi við! Ég myndi bara detta niður dauð eftir svoleiðis tíma. Hef ekkert úthald og vantar bara að vinna í því, sem og að styrkja mig, út af vöðvabólgu og vefjagigtarveseni.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim