22.10.05

Óvissuferð G-89 2005:

Bara bjór í boði í "fyrir"partýinu - lélegt en ég hafði vit á því að koma með "nesti" með mér.

Partýleikir með of keppnisfullu fólki - leiðinlegir þegar fólk fer að þrjóskast og rífast út af engu.

Pool í góðum hópi - algjör snilld! Ekki sakar þegar liðið manns vinnur ;-)

Rútuferð í niðamyrkri - bara gaman... sérstaklega gaman að syngja :-)

Draugasetrið - ótrúlega fyndið pleis!

Humarveisla á Við fjöruborðið - það eru ekki til nógu mörg góð orð til að lýsa þessum lið rétt. Orðum það bara þannig að það er ekki hægt að nota hnífapör við þessar aðstæður og maður getur líka étið endalaust af hvítlauksristuðum humarhölum.

Myndatökur eftir matinn - bara snilld. Ég hlakka ekkert smá til að sjá allar þessar myndir í fullri stærð :-D bwahahahaha

Marskaka - úff... sælgætisbomba, maður!

Rútuferð í ennþá meira myrkri - ekki gaman að missa röddina en hún hlýtur að finnast aftur einhvern tíman á næstu dögum.

2 Ummæli:

Þann 23 október, 2005 22:29 , Blogger Kris sagði...

Úfff... mig dreymir enn um þessa marsköku :)

 
Þann 25 október, 2005 10:18 , Blogger Asdis sagði...

Hún var alveg viðbjóðslega góð!!!!

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim