21.12.05

Ég fékk loksins einkunnablaðið sent frá skólanum og viti menn... ég fékk 8 í jarðfræði (NÁT113) og finnst það bara ekkert að "ná með glans" eins og kennarinn orðaði það. Bwahahaha... maður er orðinn svo veruleikafirrtur að það hálfa væri nóg, held ég. Svo lengi sem ég geri mér allavega grein fyrir því þá hlýt ég að vera í góðum málum.

Mér líður eins og í warzone hérna í vinnunni. Hinum megin við vegginn hjá mér eru menn búnir að vera að brjóta niður steyptan vegg, og eru núna að skófla honum út um gluggann upp í kerru. Svo þarf að brjóta niður vegginn sem er hérna við hliðina á mér, en fyrst ætla þeir að smíða bráðabirgðavegg mín megin svo að ég geti nú haldið áfram að vinna. Meiri lætin í þessum körlum hérna! Það er sem sagt verið að byrja á því verki að endurskipuleggja allt skrifstofusvæðið hérna hjá okkur.

Ég fór í bíó í gær. Vá.. það var æði! Ég mæli með því að fólk fari að sjá The Chronicles of Narnia: The Lion, The Witch and The Wardrobe við fyrsta tækifæri!

4 Ummæli:

Þann 21 desember, 2005 11:33 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

Já það er mynd sem mig langar að sjá og bækurnar, langar að lesa þær líka.
Glans já mér finnst þetta fín einkun og hann veit eflaust hvort þetta er hátt í heildina eða ekki.

 
Þann 22 desember, 2005 07:26 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hey! Hvernig stendur á því að þú komst á forsýningu???? Ég er búin að lofa eldri dóttur þinni að koma með henni í bíó daginn fyrir gamlárs, en mér finnst hrikalega langt þangað til!!!! :)
Kv. Kristín litla skrítna systir

 
Þann 22 desember, 2005 07:55 , Blogger Asdis sagði...

Og já dóttir mín er alveg á því að fara með ykkur daginn fyrir gamlárs því myndin er svo æðisleg. Og hvernig fékk ég miða? Þetta var Bylgjuforsýning, hvað annað ;-) Það borgar sig stundum að hafa "contacta" á réttum stað... Mig langaði svo að bjóða þér með og hefði sko gert það ef þú hefðir verið búin með prófin.

 
Þann 27 desember, 2005 14:52 , Blogger Sonja sagði...

Gott að vita að myndin sé góð. Ég dýrkaði þessar bækur á sínum tíma þó það sé orðið ansi langt síðan. Spurning hvort maður eigi að lesa þær uppá nýtt eða bara njóta myndarinnar fyrir það sem hún er.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim