Vá, ég fór í flottustu skírn ever í gær. Hann Þorri litli, systursonur minn, var tekinn inn í þjóðkirkjuna við einstaklega fallega athöfn í Mosfellskirkju þar sem meðal annars voru flutt verk eftir föðurbróður hans Þorra og flytjendur voru hvorki meira né minna en Páll Óskar og Monika. Einnig voru nokkrir meðlimir úr Mótettukórnum sem sungu yndislega sálma á latínu og að lokum flott saxófónsóló frá bróður vor! Þorri svaf eins og engill mest alla athöfnina og lét það ekkert á sig fá þótt snjóstormur geisaði fyrir utan.
Í veislunni var boðið upp á endalaust, og mikið meira en það, af kökum, smá píanóleik frá dóttur minni og glæsilegan barbershop-söng frá Laugarneskvartettinum. Frábær dagur og sérstaklega gott að fá að gefa litla frændanum mínum að drekka og ofdekra hann svo með því að leyfa honum að sofa í fanginu á mér heillengi ;-)
Takk innilega fyrir daginn :-)
4 Ummæli:
Ekkert smá grand skírn!
ps. hvíslaðiru ekki "Karítas Árný, Karítas Árný, Karítas Árný" í eyrað á honum á meðan hann var sofandi? ;)
Ég reyndar gaukaði því að honum meðan hann var vakandi, að ég hefði hitt kærustuna hans um daginn, og þá fór hann bara að væla! Held hann sé kannski ekki tilbúinn í samband alveg strax ;-)
Nei ok... en það er allt í lagi að leggja grunninn að þessu ;)
Takk fyrir daginn sömuleiðis! Við erum ekkert smá ánægð með þetta. Gaman að ykkur þótti þetta heppnast vel.
Með allrabestukveðju frá Þorra, Þresti Frey og Unu Björk
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim