23.1.06

Úps maður gleymir sér bara alveg og bloggar ekkert svo dögum skiptir. Námskeiðið sem ég fór á í síðustu viku var ágætt, ég lærði slatta, rifjaði helling upp og held ég sé bara í góðum málum með þetta blessaða launakerfi.

Undanfarið hef ég verið að: vinna, knúsa börnin mín, sauma, horfa á Lost og Desperate housewives eftir laaaaaaaaaaaangt jólafrí þáttanna, borða, sofa o.s.frv. Ekkert voðalega sérstakt í gangi svo sem, sem er kannski ástæðan fyrir vöntun á blogg-þörf.

Ég sé fram á 3 hressar helgar í röð í febrúar, þorrablót, árshátíð og sumarbústaðaferð, og mér sýnist á öllu að fyrrum vinnufélagar mínir séu að reyna að fá mig á eitthvað djamm nk. föstudagskvöld. Verð að athuga hvort ég fái útivistarleyfi það kvöldið ;-)

2 Ummæli:

Þann 27 janúar, 2006 10:56 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

Ég klukkaði þig og hvert ertu að fara í sumarbústað...?

 
Þann 27 janúar, 2006 15:05 , Blogger Asdis sagði...

Ég fer í bústað í Brekkukjarri (eða Brekku"skógi" eins og það heitir víst) með tveimur vinkonum mínum, ferðin heitir HÁSBÁS (Hin Árlega Sumarbústaðaferð Bjargar, Ásdísar og Sólrúnar)! Ég held við ættum að stofna einkahlutafélag í kringum félagsskapinn.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim