Ég fór að sjá Brokeback Mountain með stóru systur í gærkvöld. Vá hvað þessir gæjar, Heath Ledger og Jake Gyllenhaal, voru sannfærandi í hlutverkum sínum! Ég er eiginlega enn svolítið orðlaus yfir myndinni. Margt í henni sem fær mann til þess að hugsa og margt sem fær mann til þess að finna til með persónunum í henni.
Nú er stefnan tekin á að fara út að borða með tengdamömmu og kannski mágkonu minni líka á laugardaginn, á meðan karlarnir fara á Þorrablót. Við höfum lítinn sem engan áhuga á þorramatnum þannig að þetta er ágætis lausn á vandamálinu ;-) Stelpurnar mínar ætla í sveitina og hlakka mikið til! Það er orðið langt síðan þær voru þar síðast yfir nótt. Við erum líka að spá í að fara með dömurnar á Þjóðminjasafnið áður en við skutlum þeim í Mosó. Ég hef ekki farið á Þjóðminjasafnið í næstum því 10 ár þannig að það verður mjög gaman að sjá hvernig þetta lítur allt út í dag.
6 Ummæli:
Datt í hug að Jake Gyllenhaal væri eitthvað skyldur Maggie Gyllenhaal, þeirri eðalleikkonu. Mikið rétt, skv. imdb er hann litli bróðir hennar. Langar mikið að sjá þessa mynd.
Jú Jake er einmitt litli bróðir hennar Maggie. Þau eru líka svolítið svipuð í andliti, ef maður spáir í það. Hann er rosalega góður í þessari mynd! Mæli hiklaust með henni.
mig langar svo að sjá hana en Siggi vill ekki fara á hana dreg vinkonu mína á endanum.
Hafrún - erum við ekki vinkonur! vink, vink. He he
Einni sem langar til að vera dregin á bíó.
Jú Sonja en það verður að vera eftir 19 feb þá því Siggi er úti í flórída frá 10 - 18 kemur heim 19
nema ég fái pössun.
Kemurðu ekki bara með saumakona?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim