Ég á aldrei eftir að fara á Atlantsolíustöðina á Sprengisandi aftur. Það er nokkuð ljóst eftir það sem gerðist áðan! Ég ætlaði sem sagt að fylla á bíllinn hjá mér. Við allar 4 dælurnar var eldgamalt, og ég er ekki að ýkja, fólk sem greinilega kunni ekki á systemið. Á undan mér var gömul kona sem tókst eftir 10 mínútur að fylla á bílinn hjá sér og keyra í burtu. Við hina dæluna á undan mér var fjörgamall maður sem gat ekki skilið það að hann átti ekki að setja pumpuna fyrst í bílinn og fara svo að borga. Ég smeygði bílnum mínum framhjá honum þegar gamla konan var búin og þá var gamli maðurinn enn að. Svo fór ég upp að dælunni, setti dælulykilinn minn rosalega flotta upp að dælunni og dælan sagði "Þessi dæla tekur ekki svona greiðslukort." What the???
Ég ætla að reyna að fylla á bílinn í kvöld hérna úti á Kársnesinu og vonast til þess að það verði ekki fleiri en 3 bílar á svæðinu, því að það þýðir náttúrulega biðröð út á götu!!!
Bitur?? Ég??
4 Ummæli:
Two words: BENSÍN FRELSI! :)
Ég vil ekki versla við dónana sem arðrændu þjóðina í bensínverði lengi vel.
Lítilmagninn lifi! Húrra húrra húrra!
Hehe, nokkuð til í því. Þú ert þá líklega ein af fáum Íslendingum sem er ekki búin að gleyma öllusaman!
Já, ég á það til að vera ótrúlega þrjósk!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim