8.4.06

Játs... ég ætlaði víst að blogga um mánudagskvöldið. Úff. Depeche Mode. Í nýlega uppgerðum Wembley Arena. Við löbbuðum inn á gólfið, hægra megin við sviðið og gengum bara strax upp að hægra horninu því þar var ekkert mikið af fólki. Vá. Geggjað. The Bravery hitaði upp og þeir voru ágætir; ágætis gamaldags rokk'n'ról fílingur í þeim en söngvarinn var eitthvað skrýtinn samt. Mér fannst eins og hann væri að leka niður af þreytu, greyið.

Eftir margra mánaða bið og eftirvæntingu komu svo Depeche Mode á sviðið eitthvað upp úr kl. 9 minnir mig. Jösses. Ég bara tapaði mér alveg. Þeir voru uppfullir af orku alveg frá byrjun og voru ekki lengi að koma salnum í mergjað stuð. Góð blanda af eldgömlum, gömlum, nýlegum og nýjum lögum (það verður eiginlega að sortera tónlistina þeirra svona því þeir hafa verið svo lengi að) og ég var svo heppin að geta sungið með þeim öllum. Svo náttúrulega öskraði maður og æpti líka af eintómri gleði. Þetta var allt svo æðislegt eitthvað. Enginn troðningur þarna upp við sviðið, alveg nóg pláss fyrir alla og fólk var greinilega þarna bara til þess að njóta tónleikanna. Sem er akkúrat eitt atriði sem mér finnst að Íslendingar ættu að læra. NJÓTA TÓNLEIKANNA. EKKI VERA AÐ BÚA TIL VANDAMÁL MEÐ TROÐNINGI OG LÁTUM. Ég þoli ekki Íslendinga á tónleikum. Sérstaklega eftir þessa upplifun, að hafa verið alveg fremst og það var ekki einu sinni stigið á tærnar á mér.

En.... uppáhaldsmómentin voru mörg. Mér fannst æðislegt að sjá hvað Dave er orðinn heilbrigður og hraustur í útliti eftir að hafa náð sér upp úr dópistalifnaðarháttunum sem hann stundaði í fleiri fleiri ár. Hann er tágrannur, en ekki grindhoraður, og stundar ábyggilega jóga því hann er bara nokkuð vöðvastæltur núna, karlanginn. Það var mikið öskrað á þessu augnabliki, þegar Dave fór úr vestinu og sýndi okkur tattóið á bakinu á sér.

Mér fannst æðislegt að sjá Dave snúa sér hring eftir hring eftir hring í A Question of Time, hann gerði þetta í öllum milliköflunum, og var orðinn ansi ringlaður þarna á tímabili. Ég fann vídeó sem sýnir byrjunina á laginu: AQOT Ég gæti horft á þetta clip endalaust :D

Hér er líka vídeó sem sýnir annað gott móment í Enjoy the Silence, þar sem Dave fór næstum inn í gítarinn hans Martins... og btw, þarna sjást líka vængirnir á bolnum hans Martins vel. Hahahah þvílíkt átfitt! Hann er æðislegur!

Ég var beint fyrir framan Fletch sem er svona hmmm... "the silent partner" á sviði en hann tók nú bara heilmikinn þátt í skemmtuninni. Hann var farinn að hoppa og klappa með okkur áður en maður vissi af. Hann fylgdist vel með áhorfendunum fyrir framan sig og skemmti sér greinilega mjög vel.

Það sem situr rosalega fast í mér eftir þessa tónleika var hversu þakklátir *þeir* voru í lokin. Móttökurnar sem þeir fengu voru rosalegar og salurinn var í stuði allan tímann. Þeim fannst þetta greinilega æðislegt og það fannst mér nú bara líka. Þetta kvöld gleymist aldrei og ég verð að segja alveg eins og er að mér líður eins og ég hafi verið að halda framhjá Duran Duran ;-)

Ef ég fæ tækifæri til þess aftur, þá fer ég hiklaust á aðra DM tónleika. Þeir eru vel þess virði og miklu meira en það!

4 Ummæli:

Þann 09 apríl, 2006 00:12 , Blogger Litla Skvís sagði...

grát öfund grát öfund grát!!!!!!

Hólí... grááááááát!
Já og meira gráááááát!

Samt... ég er búin að vera drulluveik síðan ég kom frá London og er ekki ennþá búin að ná mér :-/ Svo að ég hefði örugglega ekki verið góður félagsskapur!

En eins og ég segi, næst næst NÆST!

Annars fór ég á geggjaða tónleika á fimmtudaginn með dEUS. Ójá.. það var feitt og sveitt!

 
Þann 09 apríl, 2006 13:02 , Blogger eva sagði...

Hurrðu, ég var að prófa þetta photobucket og líst vel á það. En hvaða link nota ég þar sem fólk getur skoðað myndirnar? Ég finn bara þennan sem fer með mig á mitt upload svæði, en engan svona "sýna öðrum allar myndirnar mínar" link.

 
Þann 11 apríl, 2006 13:10 , Blogger Kris sagði...

Vá, ég reyni að öfunda þig ekki mikið, en þetta hlýtur að hafa verið ótrúleg upplifun... (*öfund, öfund*) :)
Ef þú ferð einhvern tíman aftur á DM tónleika þá KEM ÉG MEÐ :D

 
Þann 11 apríl, 2006 13:20 , Blogger Asdis sagði...

Já, ég verð sem sagt að kaupa allavega 3 miða þegar ég fer næst... einn fyrir mig, einn fyrir Lindu og einn fyrir Kris :D Ekki leiðinlegt...
Langar til Århus í Júní... en hef ekki efni á því... nema ég vinni í víkingalottóinu á morgun.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim