Mæli ekki með...
... Apótekinu. Dónalegur eigandi sem á peningana manns ekki skilið. Fer aldrei þangað aftur.
... Ælupest. Gerir engum gagn. Heldur vöku fyrir heilu fjölskyldunum, því auðvitað bankar hún alltaf upp á á nóttunni. Passið ykkur á henni.
Mæli með...
... Litlu Hryllingsbúðinni í Óperunni. Góð skemmtun, ágætis söngvarar og leikarar. Gói tekinn í sátt sem Baldur, hann stóð sig mjög vel. Jói góður í hlutverkunum 8. Ekki leiðinlegt að vera á 5. bekk fyrir miðju.
... gamla góða Horninu niðri í bæ. Skemmtilegt viðmót þjónustufólksins, ofsalega góður og frekar ódýr matur. Sjávarréttapannan klikkar ekki.
... tyggjóchewing glottinu hans Nick og kanínutönnunum hans John
2 Ummæli:
Já heyr heyr...koddu bara í bílaapótekið Hæðasmára til mín...:)
Gaman hvað þú ert dugleg í Youtube póstunum. Þetta er alveg ný kynslóð af bloggurum sem er að spretta upp núna. Ég fílaða. Ég var sérstaklega mjög ánægður með þig að pósta Smiths vídjóinu hér um daginn.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim