Hafið þið prófað að nota silicon kökuform?
Ég keypti mér slík fyrirbrigði fyrir nokkru en þar sem ég baka ekkert voðalega oft er ég eiginlega ekki komin í "æfingu" með að nota þau.
Ég var t.d. að baka indælis marmaraköku fyrir partýskipulagningarfundinn sem ég held í kvöld og auðvitað tókst mér að klúðra því gjörsamlega að ná kökunni úr forminu. Jújú, ég náði henni svo sem úr forminu en hún er í nokkrum hlutum eftir það ævintýri.
Vona bara að hún bragðist vel þrátt fyrir það.
3 Ummæli:
Ææ, leiðinlegt að heyra. Ég eignaðist tvö svona form fyrir nokkrum mánuðum og hef notað þau mikið og yfirleitt alltaf gengið vel. Stundum hef ég reyndar þurft að bretta uppá þau til að ná kökunni heillri úr...
btw, flott nýja lúkkið á síðunni :)
hey flott breyting og ég er handviss um að kakan var algjört afbragð á bragðið.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim