Jæja, þá er stutt í jólin. Þau koma víst, alveg sama hvað maður gerir eða gerir ekki. Það tel ég vera eina af mínum bestu stundum, að komast að þessari staðreynd. Þá hef ég nefnilega góða afsökun fyrir því að tapa mér ekki í jólastressi eins og 99% þjóðarinnar gerir á hverju ári.
Það er alltaf eins og jólin komi þjóðinni á óvart. Strax í byrjun desember er orðið ólíft úti í búð, alveg sama hvort búðin heitir Nóatún eða Debenhams, því *alltaf* er búðin úttroðin af fólki. Það er eins og allir séu að keppast við það að eyða sem mestum tíma í búðum. Þess vegna vil ég helst ekki versla neitt í desember. Mér líður bara illa í þessari fólks-kássu sem myndast alls staðar. Sumir segja að þetta sé "jólastemningin" að þeytast búð úr búð, sjá fólk og sýna sig. En mér líður bara illa. Finnst eins og ég sé að drukkna í fólki.
Jólastemningin er í mínum augum að slaka á heima hjá mér, róleg tónlist í gangi, kertaljós í glugganum, góð bók eða handavinna í fanginu, börnin að dunda sér við eitthvað. Ég vildi óska þess að fleiri Íslendingar uppgötvuðu hvers þeir eru að fara á mis við. Rólegheit er það sem ég vil um jólin.
3 Ummæli:
HEYR... HEYR !!!
Algjörlega sammála..
Íslengingar eru sturlaðir þegar það kemur að svona dæmi.. og svo þegar 27. kemur og búðirnar opna aftur.. þá verður Skelfirinn vinsæli kominn á 1.500 kall..
Tek ekki þátt í svona geðsýki..
Ég gæti ekki verið meira sammála (nema ég er ekki alveg viss hvað þú meinar með Skelfirinn vinsæli hérna fyrir ofan).
Ég bara nenni ekki jólastressi og vil hafa huggulega aðventu.
Sonja, þetta hérna http://www.mall.is/?item=2413&v=item er skelfirinn. Þetta dót hefur verið að seljast á allt að 15.000 held ég í leikfangabúðunum hérna og er eitthvað fjarstýrt drasl sem ég get ekki ímyndað mér annað en að slasi hvern sem það ræðst á.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim