Akkúrat þegar ég hélt að Grey's Anatomy væri að verða bara einn af þessum þáttum þarna... þá komu þættir númer 15, 16 og 17 í þriðju seríu og gripu mig heljartaki. Svei mér þá. Ég hef ekki lifað mig svona inn í sjónvarpsþætti síðan ég horfði á Húsið á sléttunni, 6 ára eða svo.
Ég mæli bara eindregið með þessari sjónvarpsþáttaröð.
Og ekki sakar að Emilíana Torrini er spiluð reglulega í þeim ;-)
5 Ummæli:
Þarf að kíkja í heimsókn og leyfa flakkaranum mínum að heilsa upp á tölvuna þína. Grey's anatomy er æði:)
Knús Erna
Ég fokking elska Grey's. Og ég segi fokking elska af því að ég reyni eins og ég get að berjast á móti þessari ást. Eða reyndi. Er búin að átta mig á því núna að það er tilgangslaust.
Kveðja,
fyrrum Grenjað á gresjunni aðdáandi.
Úff já, elska Grey´s, er alveg orðin húkkt á þessum þáttum.... farið að líkjast ástríðu minni á Friends, en þó öðruvísi.
Ég er bara komin uppí þátt nr. 14 í þriðju seríu, spurning að fá þessa lánaða hjá þér ;).
Kv,
B-ið í BÁS
Hef aldrei séð Grey's er ég að missa af einhverju stelpur???
Já, Hafrún mín. Þú ert sko að missa af heilmiklu!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim