Mér líður eins og kærulausustu móður í heimi akkúrat núna.
Ætla að stinga heimilið af 3 helgar á næstu tveimur mánuðum.
Tvær sumarbústaðaferðir (HÁSBÁS og saumósumó) og helgarferð til London með saumaklúbbsskvísum.
Held ég sé biluð bara. Spurning hvort þég þurfi að fara í undirgefnis-, húsmóður- og móðurmeðferð. Kona á mínum aldri með ung börn á náttúrulega ekki að gera neitt fyrir sjálfa sig.. eða hvað??
2 Ummæli:
Bull og vitleysa ef þú ert ánægð og glöð þá skilar það sér til barnanna þinna... Þú hefur gott af þessu og þar sem ég verð á tveimur af þessum stöðum segi ég ég hlakka svo til LONDON BABY
Það er nú bara bráðnauðsynlegt að fara aðeins í burtu frá börnum og búi. Skemmtu þér vél í sumó og London.
Kveðja,
Edda
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim