Maður er bara næstum því hættur að blogga. Hvurs lags eiginlega er þetta???
Ég reyni að hunskast í ræktina 2 í viku. Það tekst engan veginn alltaf. Hvernig fer fólk að þessu?? Sumir fara jafnvel 5-6 sinnum í viku!! Er fólk ekki að vinna? Ekki með fjölskyldu? Eru þetta kannski bara lónerarnir sem komast alltafí ræktina?
Ekkert kíló farið en ég breytist aðeins í laginu allavega.
Mæli hiklaust með því að hlusta á Morrissey diskinn "Ringleader of the Tormentors" í ræktinni. Ég get auðveldlega labbað rösklega þennan tæpa klukkutíma bara til að missa ekki af neinu lagi. "Life is a pigsty" er í sérstöku uppáhaldi þessa dagana ;-)
Ömurlegar fréttir frá Virginíufylki þessa dagana. Maður getur bara ekki komist nálægt því að skilja hvernig nokkur maður getur framið svona köld morð, hvert á eftir öðru.
Ég er svöng. Bara svona að láta vita áður en ég gúffa kvöldmatnum í mig.
3 Ummæli:
Við ættum kannski að drífa okkur oftar saman í ræktina. Það er alveg óskiljanlegt að maður gefi sér ekki meiri tíma í þetta því það fylgir þessu svo mikil vellíðan :) og gaman að finna líkamann styrkjast!
Skil þig mjög vel með hvað er erfitt að komast í ræktina. Ég legg mig alveg í líma við að skipuleggja ekki neitt annað á mínum 3 heilögu tímum í viku í ræktinni en svo heldur fólk afmæli, maður bíður fólki í mat og fleira svoleiðis skemmtilegt. Sem þýðir auðvitað að ræktin fer í vaskinn þann daginn....
Kannski er ein leið að bóka 4-5 tíma í ræktina í hverri viku og gera allt sem maður getur til að komast í þá alla. Þá endar maður á að fara 2-3 eins og upprunalega var planað:)
Knús Erna
Já blessuð ræktin. humm humm
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim