2.2.08

Ég mæli með Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness (hversu frábærlega nördalegt er þetta nafn?) í dag.

Ég eyddi næstum því þremur klukkustundum í kvöld í það að setja upp sjónaukann minn og skoða stjörnur ásamt fleira fólki við Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Hápunktur kvöldsins var að sjá Satúrnus með hringina sína um kl. 22:30. Þeir sem hafa tækifæri á að skoða þetta í sjónauka, þá bara mæli ég ógurlega með því. Æðislegt. En mikið hrikalega var kalt þó ekki bærðist hár á höfði! 15 stiga frost er alveg slatti.

Ég er ótrúlega stolt af mér að hafa enst svona lengi út í kuldanum. Var líka bara í öllum græjum sem hægt var að vera í eiginlega. Fer í gönguskónum en ekki fancy ítölsku kuldaskónum næst.

2 Ummæli:

Þann 03 febrúar, 2008 16:04 , Blogger Hlynur og Erna Sif sagði...

Ég kannast við einhverja "nörda" úr þessum hópi. En þeir eru víst með stjörnukíki á þakinu á Valhúsaskóla.
En flott að jólagjöfin frá kallinum sé að virka!

 
Þann 03 febrúar, 2008 18:01 , Blogger Asdis sagði...

Við mamma klifruðum upp í turninn að kíkja á stjörnukíkinn þar um daginn. Því miður var snjókoma og ekkert hægt að kíkja í græjuna þá, en það gerist kannski seinna.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim