Þegar ég var ung að árum (8-10 ára gömul) dýrkaði ég Stevie Nicks úr Fleetwood Mac. Hún var bara svo.... mikill hippi, eitthvað. Mér fannst hún alveg frábær. Og finnst enn. Ótrúlega spes rödd og draumkennt útlit hennar hafa alltaf einhvern veginn höfðað til mín.
Þegar ég varð aðeins eldri fannst mér ég vera að líkjast Christine McVie, sem mér fannst frekar boring karakter.
Í dag horfi ég til baka og dýrka enn Stevie Nicks. Lög eins og þetta koma mér alltaf í gott skap og það er fátt skemmtilegra en að syngja þetta alveg á milljón eins og enginn sé að hlusta.
Undanfarin ár hef ég líka náð að taka Christine McVie í sátt. Hún er ekki alveg eins boring og ég hélt að hún (og ég) væri. Sá meðfylgjandi tóndæmi :)
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim