14.5.08

Brekkan hjá húsinu mínu er með sportrönd... það er sem sagt ekki búið að þekja yfir sandinn sem var látinn í sárið eftir stigann ógurlega. Það verður gaman að vita hvað gerist fyrir 17. júní þar sem ansi margir stytta sér leið úr skrúðgöngunni niður götuna okkar og út á Rútstún í stað þess að fara út fyrir sundlaug eins og lúðrasveitin gerir.

Ég er að fara í enskuprófið á eftir. Er alveg ótrúlega sallaróleg yfir því og hlakka bara til að sjá hvað kemur á prófinu.

Ég er meira stressuð yfir Menningarfræðinni sem er á föstudaginn. Þvílíkt ógnar-über-magn af efni. Ég hef bara aldrei kynnst öðru eins. Söguáfangarnir sem ég hef tekið hafa verið auðveldari og með minna lesefni, og þá er nú mikið sagt fyrir mig!

Auðvitað langar mig helst bara að liggja í sólbaði í dag, það ætti að banna svona veður á prófdögum. Ætli þetta sé ekki bara til heiðurs Árna mágs sem kláraði sín próf í gær :) Til hamingju, Árni minn!

Ég náði þó að sitja úti í smá stund áðan meðan ég las yfir amerísku smásögurnar fyrir prófið. Ég held ég eigi það líka skilið að fara núna út og láta sólina sleikja mig í hálftíma áður en ég fer síðustu yfirferð yfir orðin sem ég þarf að muna og dríf mig svo í prófið.

1 Ummæli:

Þann 14 maí, 2008 13:06 , Blogger Árni Theodór sagði...

Já, enda ætla ég bara að fara út að hlaupa núna og svo beint í sund í tilefni dagsins. Ég er alveg viss um að þú fáir líka gott veður um helgina þér til heiðurs.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim