Það er gott að búa í Kópavogi.
Ó já.
Góð þjónusta og svona.
Í júlí 2006 datt maðurinn minn í tréstiga sem liggur niður brekkuna fyrir utan húsið við hliðina á okkur. Þrepið brotnaði undan honum. Við hringdum í Áhaldahús Kópavogs nokkrum dögum síðar og sögðum hæstráðandi þar frá því að þrepin í stiganum væru að morkna í sundur og að þetta væri bara stórhættulegt!
Tæpu ári síðar, eða í maí 2007 hrasaði tengdafaðir minn í þessum sömu tröppum en ekkert hafði verið litið á þær síðan við hringdum og kvörtuðum upphaflega. Við hringdum aftur og spurðum hvort ekki ætti að fara að gera eitthvað við þessar tröppur, eins og t.d. setja steyptar tröppur eins og eru í sitt hvorum endanum á götunni. Ekkert svar fékkst og ekkert gerðist.
Ég varð vitni að því sl. mánudag þegar bíll frá bænum keyrði inn litla götubútinn minn til að hirða trjáafklippur og slíkt af lóðamörkum. Ég hef grun um að starfsmennirnir sem í bílnum voru hafi tekið eftir ástandi stigans (en hann var í drasli) því þegar þeir voru farnir var búið að strengja plastborða fyrir stigann, bæði að ofan og neðan.
Og í dag fór ég út og langaði að klappa, því menn frá bænum komu og rifu niður stigann stórhættulega. Örlitlu seinna komu þeir aftur, en nú með sand á pallinum og dömpuðu heilum helling af sandi í sárið í brekkunni. Ég hætti við að langa að klappa. Ég held þetta þýði aðeins að þeir muni koma í fyrramálið með þökurúllu og dömpa henni niður brekkuna. Við í miðjum götubútnum fáum sem sagt ekki að lifa við þann lúxus að geta tölt upp brekkuna rétt hjá húsunum okkar. Reyndar höfum við það í 5 nokkuð betra heldur en fólkið í 7 en þeirra leið upp á veg mun lengjast um svo sem 400 metra eða svo, ef þau halda áfram að leggja bílnum sínum beint fyrir ofan húsið sitt.
Já, það er gott að búa í Kópavogi. Ég er svo rosalega hrifin af Sjálfstæðismanna stjórninni, hraðri afgreiðslu á því sem skiptir fólk í bænum máli og hvað það rosalega góðum úrlausnum sem gera það betra að búa í Kópavogi. Ok, nú er ég að drepast úr kaldhæðni, en mér finnst það ekki góð þjónusta að taka stórhættulegan stiga burt þegar hann er búinn að vera stórhættulegur í 2 ár.. og hvað þá að láta okkur ekki fá nýjan stiga í staðinn heldur verður bara fyllt upp í með grasi eins og ekkert hafi gerst....
Aaaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrggggggggggghhhhhhhhhhhh
3 Ummæli:
Úff þetta hljómar ekki vel. Er ekki kominn tími á að kvarta í blöðin, virðist vera það eina sem virkar á þessa stjórnmálamenn oft...
Knús frá Philly
Erna
Ég man svo eftir þessum stiga. En hann var ekki morkinn þá allavega slaðist ég aldrei í honum.
Enda kannski pínu tími liðinn síðan ég var í skátafélaginu Kópum ...
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim