One down, three to go!
Lögfræði103 var nákvæmlega eins og ég bjóst við. Var sem betur fer búin að eyða öllum deginum í að fara yfir allar skilgreiningarnar úr bókinni og náði held ég nokkuð góðum árangri. Kennaranum tókst hins vegar að snúa á mig með síðustu spurningunni sem ég var engan veginn viss á. Ekki hafði verið farið sérstaklega í það efni í neinum verkefnum (munurinn á viðskiptakröfum og almennum kröfum) og ég er ekki viss um að ég geti einu sinni svarað því núna eftir að hafa lesið kaflann í bókinni eftir að ég kom heim.
En.. enívej.. ég náði pottþétt allavega.
Alþjóðafræði203 á miðvikudaginn. Bækur um Austur-Evrópu, here I come!
Smá Falco til að koma mér í stuð:
2 Ummæli:
Til hamingju með fyrstu próflokin!
Þetta verður búið eftir örskotsstund og þá bíður bara sumarið...
Knús Erna
Hmmmm, viðskiptakröfur og almennar kröfur - svei mér þá. Ég gæti nú ekki skrifað ritgerð um það!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim