22.7.04

Enn og aftur var það staðfest að á Íslandi er hvergi betri þjónusta á veitingahúsi heldur en á Argentínu.  Við Stjáni borðuðum þar á þriðjudagskvöldið og fengum eðal mat, eðal þjónustu og það kostaði ekkert mikið meira að segja!  Frábært kvöld og ofsalega vel á móti okkur tekið.  Mæli hiklaust með þessum stað.  Jarðarber með þeyttum rjóma voru ÆÐISLEG í eftirmat :) :) :)

Það verður vonandi fjör í kvöld, er að fara að sjá Hárið með Verzlógellunum mínum, og hitti meira að segja eina þeirra í fyrsta sinn í 5 ár held ég :)  Förum út að borða fyrst á Ítalíu, hef ekki farið þangað lengi.

Mikið er ég rík að eiga fjögur systkini!  Gott að eiga svona marga nána að þegar maður þarf á styrk að halda.  Takk fyrir að vera til kiddos :) :) :)

 

2 Ummæli:

Þann 25 júlí, 2004 04:06 , Blogger Hlynur og Erna Sif sagði...

hi sys!
til hamingju med brudkaupsammilid!!
Takk somuleidis:) vid erum frabaer systkini.....
Hefdi viljad vera med a systkinakvoldi....vil fa ad vita allt sludrid!!!!!

 
Þann 26 júlí, 2004 14:44 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Risaknús frá stóru systur, mér finnst ég líka rosalega rík að eiga ykkur :*

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim