1.6.05

Mikið var hressandi að hjóla í vinnuna í morgun. Í mp3 spilaranum hljómaði þetta á leiðinni:
1. Nice - Duran Duran - rosalega hresst sumarlag, alveg tilvalið til að byrja niður brekkuna :)
2. I can't be with you - The Cranberries - Fékk þetta lag á heilann um daginn.. get ekki hætt..
3. Saturday in the park - Chicago - Þetta er náttúrulega bara the ultimate motivational lag, góður taktur til að hjóla við og ferlega skemmtilegt.
4. Where the rose is sown - Big Country - Hið fullkomna 80's rokk. Í minningu Stuart Adamson sem var rokna söngvari og gítarleikari. Híííjaaa...
5. Overkill - Men at work - Þá er það ástralska tónlistin sem má ekki skilja út undan: Colin Hay, maðurinn með lata augað. Þetta er snilldar lag sem ég enduruppgötvaði í þættinum Scrubs fyrir ca. tveimur árum og hef ekki getað hætt að hlusta á síðan.

Svona hagaði uppáhalds bassaleikarinn minn sér eftir tónleika í Birmingham á Englandi sl. laugardagskvöld. John í leðurbuxum.. hann veit hvað stelpurnar vilja ;)


Ég mæli svo með Body Balance í Baðhúsinu í kvöld. Mæti hress og kát ;)

2 Ummæli:

Þann 01 júní, 2005 14:11 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Er ekki málið að hjóla heim eftir vinnu, og hjóla svo aftur í baðhúsið? Hehehe, ég með smá forskot ;)

Kristín

 
Þann 01 júní, 2005 14:52 , Blogger Asdis sagði...

Hehehe.. ef ég hjóla í Baðhúsið þá hef ég enga orku eftir fyrir tímann! Ef við förum í Body Balance í Sporthúsinu hins vegar, þá er ég alveg til í að hjóla ;)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim