Ég gleymdi alveg að blogga um Himnaríki í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Sá sem sagt það leikrit með B&S sl. laugardagskvöld og þetta var nú bara hin besta skemmtun. Leikritið er ansi sérstakt að því leytinu til að í raun horfir þú á sama leikritið tvisvar í röð. Í fyrra skiptið horfir þú inn í húsið, í seinna skiptið horfir þú á húsið að utan (eða öfugt, náttúrulega). Þannig að sumt sem maður skildi ekki alveg í fyrra skiptið náði maður alveg í seinna skiptið ;-)
Ansi hreint skemmtilegir leikarar í þessu verki en upp úr stendur, án efa, Gulla. Guðlaug Elísabet eitthvað en ég held að allir þekki hana bara sem Gullu. Svipbrigðin á manneskjunni í pottaatriðunum eru alveg óborganleg. Ég hugsa um þau núna fjórum dögum seinna og fer að flissa. Get bara ekki haldið andliti. Jói G (eða Bárður í Stundinni okkar) var mjög góður líka, flottur í skopparabuxunum sínum og með *ótrúlega* sannfærandi fyllerístakta. Elma Lísa átti stundum bágt með að fara ekki að brosa inni í miðjum atriðum en hún átti líka nokkuð góða takta inn á milli. Pant ekki mæta Elmu Lísu með hníf! Þau voru þarna 3 í viðbót líka, öll mjög góð en ég bara man ekki hvað þau heita *roðn*
Ég mæli hiklaust með þessari skemmtun. Aðeins 2.900 krónur íslenskar!

2 Ummæli:
Jamm, eg hef ekkert bloggað um Himnariki (get ekki skrifað stafi með kommu þ´´a kemur bara svona´´´´...:-/) Anyways, frabært leikrit og eg hlo mig mattlausa :)
Kv, Björg
hehe já ég sá þetta leikrit fyrir 10 árum með skólanum (FB) og fannst það mjög skemmtilegt þá er eflaust jafnskemmtilegt núna og fannst þetta fyrir og eftir hlé ros sniðugt. hehe
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim