Af hverju getur ryksugan ekki farið sjálf um húsið og ryksugað?? (Já, ég veit, mig dauðlangar í svona lítið kríli sem fer um húsið og ryksugar meðan ég er ekki heima)
Af hverju fara diskar og glös ekki sjálf í uppþvottavélina?? (Já, ég veit... neyðist til þess að gera það sjálf eða þjálfa annað hvort barnið mitt í djobbið!)
Af hverju gera skólaverkefni sig ekki sjálf?? (Af hverju er ég í skóla ef ég spyr svona spurninga??)
Af hverju eru tölvuvandamál endalaus?? (Svo að tölvunördarnir hafi störf!)
Ble... þetta er einn af þessum ofur-skemmtilegu dögum, ég á von á ættarmótsnefnd til mín í kaffi í kvöld og ég nenni ómögulega að gera neitt eftir þennan ofur-skemmtilega dag í vinnunni.
Ég hlakka innilega til laugardagskvölds þar sem Byko ætlar loksins að halda almennilega árshátíð með almennilegum skemmtikröftum. Veislustjórar verða Simmi og Jói og Stórsveit Jóns Ólafssonar spilar... sem er mikil breyting frá einhverri no-name hljómsveit frá Vestmannaeyjum eða Höfn í Hornafirði, svona eins og þetta hefur verið undanfarin ár.
Og eftir bara 8 daga er ég að fara í HÁSBÁS (Hin Árlega Sumarbústaðaferð Bjargar, Ásdísar og Sólrúnar). Lambakjöt, Catan, Breezer, rauðvín, vakað fram undir morgun og vonandi fáum við Singstar einhvers staðar lánað (ég er búin að redda Playstation!).
Ég er að næla mér í þátt 13 í seríu 2 af Lost. GEÐVEIKT! Ég elska þessa þætti!

8 Ummæli:
Hva !!! illa upp alin , veistu ekki að lélegasta hljómsveitin í Eyjum er betri en einhver Jón ólafsson ( hver er það annars ? )Annars góða skemmtun .
Já, ég veit að ég er rosalega illa upp alin og heimtufrek og allt það. En mér finnst fáránlegt að vera á balli á Broadway þar sem spilar léleg hljómsveit sem hefur ekki lengra prógram en 7 cover lög og þarf þess vegna að endurtaka prógrammið ca. fjórum sinnum bara til að endast fram yfir miðnætti.
Og ég þoli heldur ekki þegar fólk skrifar anonymous comments og gefur ekki einu sinni hint um hver það er.
*hrmpf* ég er grumpy í dag
Iss, þér væri nær að bjóða mér í heimsókn! Skuldar mér ennþá heitapottsferð með rauðvíni ;)
Gætum kannski haft Lilju með? :)
Hehe já, ég skulda þér heitapottsboð. Verð að plana þetta einhvern tíman þannig að ég verði ein heima og geti djammað með ykkur hérna í pottinum. Hvenær ætli það geti gerst?? :-D
hey ert þú að fara á Byko árshátíðina ég hefði kannski farið líak ef ég hefði vitað það. Siggi er að vísu í Flórída en hvað hefði getað reddað pössun. Ákvað að fara ekki því ég þekki ekki svo mikið fólkið þarna og svo er önnur í apríl fyrir Kaupás og ég ætlaði bara á aðra. Hefði verið gaman að vita að þú værir að fara. P.S. það er rosalega girnilegur matseðill ;o9
Já, ég fer víst á Byko árshátíðina. Fylgi manninum mínum sem þæg og góð eiginkona ;-) Þetta verður vonandi gott kvöld og já, matseðillinn er alveg til þess að slefa yfir honum! Það hefði verið fínt að hafa þig þarna því ég þekki engan nema manninn minn og tengdó ;-)
Þú verður bara að fá þér eitt stykki hreindýr til að ryksuga fyrir þig;)
það eru þó tveir hehe
Já kannski maður fái sér bara hreindýr...
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim