Í dag hefði æskuvinkona mín orðið 35 ára gömul. Hún var tekin úr þessu jarðlífi langt fyrir aldur fram, rétt nýorðin 18 ára.
Það eru 10 ár og 2 dagar síðan ég lét skíra eldri dóttur mína. Sá dramatíski, tilfinningaþrungni dagur gleymist aldrei. Hún heitir eftir þessari æskuvinkonu minni og ömmu minni heitinni og ber nöfnin sín vel.
Það hjálpar ekki andlega ástandinu þegar maður er fárveikur og getur varla kyngt eigin munnvatni, hvað þá meiru, út af særindum í hálsi. Mig langar bara að leggjast upp í rúm og breiða sængina yfir höfuð.
Mikið vildi ég óska þess að flensupúkinn fari að yfirgefa okkur mæðgurnar, við erum orðnar ansi þreyttar á ástandinu.

2 Ummæli:
Æi þessi ömurlega flensa, mér finnst allir í kringum mig vera veikir :( En ég óska þér góðs bata, og dekraðu helst svolítið við sjálfa þig :)
Takk fyrir Heiða mín. Við gerum okkar besta hérna til að láta okkur batna.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim