Það verður ekki í bráð sem þetta bros fer af andlitinu á mér. Ég get svo svarið það.. ég hitti alla meðlimi Duran Duran í gærkvöld, strax eftir tónleikana. Það var stutt en þeir allir yndislegir (tjah, nema kannski Simon sem var svolítið í því og farinn að skoða einhverjar stelpur) en ég fékk allavega myndirnar sem ég hef beðið eftir að geta tekið í 21 ár eða svo. Ég gaf þeim öllum pakka, íslenskan geisladisk og kort með smá þakklætis-skilaboðum frá mér.
Byrjum á Nick.. þetta jafnast á við eiginhandaráritun, þar sem hann er professional ljósmyndari og tók myndina sjálfur. Ég spurði hann: "Could I get a Nick-picture?" Hann glotti, horfði á VIP passann minn og sagði "Of coowse daahlin" og smellti af þessari líka fínu mynd. Nick fékk () með Sigur Rós að gjöf.
Svo hitti ég Roger, hann var hálf útundan þannig að við spjölluðum slatta saman. Hann er ofsalega ljúfur maður, algjör yndi :) Roger fékk Dansaðu fíflið þitt, dansaðu með Jagúar og Tómasi R.
Svo kom röðin að Andy, fyrstu rock'n'roll ástinni minni. Já, ég var nú ekkert smá skotin í honum þegar ég var 12 ára! Hann glotti að látunum í stelpunum kringum Simon og John ;) Andy fékk disk með Kimono.. ég bara man ekki hvað diskurinn heitir.
Svo hitti ég John, þennan frábæra bassaleikara sem er svo ljúfur. Hann var mjög forvitinn um pakkann sem ég lét hann fá og reif hann strax upp. Ég gaf honum nýja diskinn með Emilíönu Torrini og hann lofaði að hlusta á hann í einhverri flugferðinni næstu dagana ;) Svo tók ég mynd en þurfti að standa á tám og fá hann aðeins niður til mín til að ná okkur í sama skotið ;) Svolítið hár þessi maður. Við skemmtum okkur allavega vel í þessar örfáu mínútur sem við hittumst!
Og loks var það Simon. Það gekk ekki auðveldlega að komast að honum yfirleitt þar sem hann var umkringdur kvenfólki.. en með frekjunni einni saman tókst mér að ná athygli hans í smá stund, gaf honum pakkann og tók mynd. Hann já var orðinn hálf-hífaður :) Ég gaf Simon nýja diskinn með Trabant.. bara út af Nasty boy laginu ;)
Það verður bara að hafa það ef þessar myndir eyðileggi uppsetninguna á blogginu mínu í bili.. mér er alveg sama :-Þ
Ég er alveg í skýjunum yfir þessari lífsreynslu og er mjög undrandi á því hvað ég var róleg á meðan á þessu stóð. Var búin að vera með magakveisu við og við allan daginn.. en hún var bara alveg horfin þegar ég hitti þá :)
Já og... tónleikarnir voru rosalega skemmtilegir líka :) :) :)
3 Ummæli:
SNILLD SNILLD SNILLD
Loksins tókst þér það !!
Til hamingju !!
víha... Lills
VÁÁÁÁÁ´´AÁÁÁÁ!!!!!!!!!!!
Þetta er algerlega GEÐVEIKT !!!
Rosalega var töff hjá þér að gefa þeim gjafir!!! Brilliant!
TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA!
Kveðja,
Þrössi þrumufygli og barbapabbi
ÖÖÖÖÖÖÖFUND!!! aldrei í lífinu hefði mér dottið í hug að þú fengir að hitta my one and only...you know who... og ÉG EKKI MEÐ! *andvarp* ojæja, samt geggjað að amk önnur okkar fékk að komast í snertingu við "gömlu" idolin.
hilsen fra Wide-holt :)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim